Innviðaráðherra gestur á aðalfundi Mannvirkis
Innviðaráherra, Eyjólfur Ármannsson, var sérstakur gestur á aðalfundi Mannvirkis - félags verktaka sem fór fram í Húsi atvinnulífsins 13. maí. Á fundinum ræddi innviðaráðherra við fundargesti um stöðu innviðauppbyggingar og uppbyggingu í mannvirkjageiranum. Löng hefð er fyrir því að innviðaráðherra sæki aðalfund félagsins, sem undirstrikar mikilvægi þess samtals sem á sér stað á milli stjórnvalda og atvinnulífsins um uppbyggingu innviða og húsnæðis í landinu. Mannvirki – félag verktaka er starfsgreinahópur innan SI sem vinnur að hagsmunamálum fyrirtækja í mannvirkja- og verktakastarfsemi með áherslu á öfluga innviðauppbyggingu, fagmennsku og bætt rekstrarskilyrði greinarinnar.
Öflug hagsmunagæsla á starfsárinu
Í skýrslu stjórnar félagsins kom fram að starfsárið hefði verið annasamt og áherslur félagsins skýrar. Rík áhersla var lögð á hagsmunagæslu fyrir verktakafyrirtæki og að bæta rekstrarumhverfi greinarinnar. Meðal helstu áherslumála voru húsnæðisuppbygging og fjárfesting í innviðum, bætt rekstrarumhverfi og eftirlit með álögum sveitarfélaga og öryggis- og menntamál. Á fundinum var farið yfir helstu verkefni ársins, svo sem vinnu við endurskoðun á ÍST 30 staðlinum og greiningar á hækkandi byggingarkostnaði.
Stjórn Mannvirkis endurkjörin
Stjórn félagsins var endurkjörin á fundinum og sitja eftirtaldir í stjórn:
- Sigþór Sigurðsson, Colas Ísland ehf., formaður
- Gylfi Gíslason, JÁVERK ehf., varaformaður
- Einar Hrafn Hjálmarsson, Íslenskir aðalverktakar hf.
- Karl Andreassen, ÍSTAK hf.
- Sveinn Hannesson, Jarðboranir hf.





