Fréttasafn



3. jún. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Landssamband bakarameistara

Keppa fyrir hönd LABAK á heimsmeistaramóti

Heimsmeistaramót ungra bakara er haldið á Íslandi dagana 3. til 5. júní. Keppnin hefur verið haldin af International Union of Bakers & Confectioners (UIBC) síðan 1972. Fulltrúar Íslands fyrir hönd Landssambands bakarameistara, LABAK, eru þær Hekla Guðrún Þrastardóttir og Stefanía Malen Guðmundsdóttir bakarar. Löndin sem keppa til úrslita eru auk Íslands, Þýskaland, Frakkland, Spánn, Svíþjóð, Ungverjaland og Kína og munu fulltrúar þeirra framreiða þjóðlegan bakstur sem dómarar UIBC munu dæma. Mótið fer fram í Hótel- og veitingaskólanum í Kópavogi.

Í tilkynningu segir að þetta sé í fyrsta skipti sem LABAK standi fyrir svona stóru móti á Íslandi og í fyrsta skipti á Norðurlöndum einnig. Um sé að ræða mikinn viðburð sem sé þekktur í heimi bakara. UIBC hafi verið stofnað árið 1931 í Búdapest og sé alþjóðasamband bakara og kökugerðarmanna um allan heim. Í sambandinu eru fulltrúar um 300.000 bakaría í fimm heimsálfum þar sem um fjórar milljónir einstaklinga starfi í bakaríum heimsins. Félagið standi fyrir allskyns viðburðum um allan heim og samhliða heimsmeistaramótinu muni Ísland verða miðpunktur umfjallana þessara aldagömlu iðngreinar hjá þátttökulöndum.

Undirbúningur og fyrsta rennsli hófst í dag 3. júní kl. 14.00 þar sem Ísland keppir. Þriðjudaginn 4. júní munu keppendur svo mæta á Bessastaði og hitta Eliza Jean Reid forsetafrú og bjóða upp á þjóðlegar kökur í tilefni af heimsmeistaramótinu. Verðlaunaafhending verður miðvikudaginn 5. júní klukkan 16.30 í Menntaskólanum í Kópavogi.

Streymt er frá keppninni og er hægt að nálgast streymið frá mbl.is hér.

mbl.is, 2. júní 2024.

mbl.is, 5. júní 2024.

mbl.is, 7. júní 2024.