Kosningafundur SI
Kosningafundur SI með forystufólki stjórnmálaflokkanna var í beinni útsendingu frá Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 8. september kl. 13.00-15.00.
Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda Alþingiskosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands; menntun – innviðir – nýsköpun – starfsumhverfi – orka og umhverfi. Í upphafi nýs kjörtímabils verða teknar ákvarðanir sem ráða miklu um efnahagslega framtíð Íslands. Miklu máli skiptir að stjórnvöld vinni að umbótum sem leiða til hagsældar, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Á fundinum voru málefnin fimm til umræðu auk þess sem kastljósinu var beint að þeim tækifærum sem grípa þarf til að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins.
Þátttakendur í dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Katrín Jakobsdóttir, VG
- Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokkur
- Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkur
- Daði Már Kristófersson, Viðreisn
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
- Björn Leví Gunnarsson, Píratar
- Kristrún Frostadóttir, Samfylking
- Inga Sæland, Flokkur fólksins
- Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaflokkurinn
Útsendingin
Hér er hægt að nálgast útsendinguna:
https://vimeo.com/event/1255125
Myndir
Á Facebook SI er hægt að nálgast myndir frá fundinum.
Ávarp formanns SI
Hér er hægt að nálgast ávarp formanns SI, Árna Sigurjónssonar, í upphafi fundarins.
Inngangsorð framkvæmdastjóra SI
Hér er hægt að nálgast inngangsorð framkvæmdastjóra SI, Sigurðar Hannessonar, á fundinum.
Könnun meðal flokkanna
Hér er hægt að nálgast niðurstöður könnunar sem gerð var meðal flokkanna sem þátt tóku í kosningafundi SI. Sósíalistaflokkurinn svaraði ekki spurningunum.
Könnun meðal félagsmanna SI
Hér er hægt að nálgast niðurstöður könnunar sem gerð var meðal stjórnenda iðnfyrirtækja innan SI.
Myndbönd frá fundinum
Árni Sigurjónsson, formaður SI
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Willum Þór Þórisson, Framsókn
Björn Leví Gunnarsson, Píratar
Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaflokkurinn
Kristrún Frostadóttir, Samfylking
Daði Már Kristófersson, Viðreisn
Inga Sæland, Flokkur fólksins
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkur
Katrín Jakobsdóttir, VG
Umfjöllun
mbl.is, 8. september 2021.
Vísir, 8. september 2021.
Viðskiptablaðið, 8. september 2021.
Vísir, 8. september 2021.
Nútíminn, 8. september 2021.
Vísir, 9. september 2021.
Mannlíf, 9. september 2021.
Miðjan, 10. september 2021.
Viljinn, 10. september 2021.
Fréttablaðið, 11. september 2021.
Auglýsingar