28. ágú. 2021 Almennar fréttir Innviðir Menntun Nýsköpun Orka og umhverfi Starfsumhverfi

Kosningafundur SI með forystufólki stjórnmálaflokkanna

Kosningafundur SI með forystufólki stjórnmálaflokkanna verður í beinni útsendingu frá Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 8. september kl. 13.00-15.00. Þeir sem vilja sitja í salnum skrái sig hér en annars verður hægt að nálgast beinu útsendinguna á vef SI, Facebook og vefmiðlum.

Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda Alþingiskosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni Íslands; menntun – innviðir – nýsköpun – starfsumhverfi – orka og umhverfi. Í upphafi nýs kjörtímabils verða teknar ákvarðanir sem ráða miklu um efnahagslega framtíð Íslands. Miklu máli skiptir að stjórnvöld vinni að umbótum sem leiða til hagsældar, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Á fundinum verða málefnin fimm til umræðu auk þess sem kastljósinu verður beint að þeim tækifærum sem grípa þarf til að auka útflutningstekjur þjóðarbúsins.

Þátttakendur í dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Katrín Jakobsdóttir, VG 
  • Willum Þór Þórsson, Framsóknarflokkur
  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkur
  • Daði Már Kristófersson, Viðreisn
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
  • Björn Leví Gunnarsson, Píratar
  • Kristrún Frostadóttir, Samfylking
  • Inga Sæland, Flokkur fólksins
  • Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaflokkurinn

Hér er hægt að nálgast útsendinguna:

https://vimeo.com/event/1255125




Auglysing_loka2

https://vimeo.com/manage/videos/598797880






 



Fáum við leyfi þitt til að nota Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um notkun þína á þessum vef?

Sjáðu nánar á persónuverndarsíðu okkar hvaða áhrif svar þitt hefur.