Fréttasafn



21. apr. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Kvikmyndaframleiðendur geta fengið endurgreiðslur fyrr

Með reglugerðarbreytingu frá ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður kvikmyndaframleiðendum heimilt, á tímabilinu 1. apríl til 1. júlí 2020, að óska eftir sérstakri útborgun á endurgreiðslu að hluta. Þetta á við verkefni sem áður hafa fengið vilyrði fyrir endurgreiðslum þó framleiðslu sé ekki lokið. Þessi hlutaendurgreiðsla kemur til frádráttar fullri endurgreiðslu við lokauppgjör. Sérstök skilyrði eru sett fyrir hlutaendurgreiðslunni, m.a. um áhrif COVID-19 á verkefnið. 

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að COVID-19 heimsfaraldurinn hafi haft töluverð áhrif á kvikmyndagerð á Íslandi þar sem frestað hefur þurft tökum og framleiðslu á verkefnum. Þá hafi frumsýningum einnig verið frestað vegna lokunar kvikmyndahúsa. Fjármögnun flestra íslenskra kvikmynda og útgreiðsla styrkja sé háð framvindu verkefna og lokum þeirra. Þannig greiði flestir sjóðir lokagreiðslu sína við skil á verkefnum og frumsýningu. Við frestun frumsýninga frestist því greiðslurnar og hafi þetta töluverð áhrif á greiðsluflæði verkefnanna. Með reglugerðarbreytingunni sé komið til móts við framleiðendurnar vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 hefur haft á kvikmyndagerð á Íslandi.

Framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi eiga kost á endurgreiðslum frá stjórnvöldum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi. Endurgreiðslurnar heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sem hefur falið Kvikmyndamiðstöð Íslands umsjón þeirra.