Kynning á Tækniþróunarsjóði á fjarfundi
Samtök iðnaðarins og Rannís boða til kynningarfjarfundar um Tækniþróunarsjóð þriðjudaginn 28. apríl kl. 12.30-14.00.
Dagskrá
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setur fundinn.
Tryggvi Þorgeirsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, gerir grein fyrir stöðu sjóðsins og næstu skrefum.
1. Fulltrúar Rannís gera grein fyrir:
- Tækniþróunarsjóði
- Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
- Nýsköpunarsjóði námsmanna
2. Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs
- Eva María Sigurbjörnsdóttir, framleiðslustjóri Eimverk
- Fida Abu Libdeh, eigandi og framkvæmdastjóri GeoSilica
3. Umræður
Fundarstjóri er Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs hjá SI.
Hér fyrir neðan er hlekkur á fundinn:
https://zoom.us/webinar/register/WN_LVv6DuZoTn61kXEh9K-SOA