Beint í efni

Kynn­ing­ar­fund­ur um fyr­ir­hug­aðar breytingar á mann­virkja­lög­um

Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundi um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum næstkomandi þriðjudag 22. ágúst kl. 8.30 í Húsi atvinnulífsins.

Kynningarfundur um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum

Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundi um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum næstkomandi þriðjudag 22. ágúst kl. 8.30 í Húsi atvinnulífsins. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur unnið að breytingum á mannvirkjalögum sem gert er ráð fyrir að verði lagðar fram á Alþingi í haust og Samtök iðnaðarins hafa fengið til umsagnar. Á fundinum mun Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kynna tillögurnar.
Breytingarnar byggja á tillögum starfshóps sem var skipaður með það að markmiði að lækka byggingarkostnað og einfalda stjórnsýslu.

Kynningarfundur um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum - Samtök Iðnaðarins