Fréttasafn



25. okt. 2021 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Landsbankinn vanmetur íbúðaþörf að mati SI

Í Morgunblaðinu er greint frá því að framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Sigurður Hannesson, hafi sent bankastjóra Landsbankans, Lilju Björk Einarsdóttur, skriflega athugasemd í kjölfar þess að bankinn kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá fyrir 2021-2024. 

Í frétt Morgunblaðsins segir að þar komi fram sú skoðun SI að hagfræðingar bankans vanmeti íbúðaþörf á komandi árum, sem sögð var vera 1.800 íbúðir á ári yfir allt landið. „Spá Samtaka iðnaðarins var síðan nýtt til að draga þá sterku ályktun að ólíklegt væri að það stefni í skort á íbúðum á allra næstu árum.“ 

Landsbankinn dregur upp of einfaldaða mynd

Þá segir í fréttinni að í kjölfarið sé bent á að myndin sem bankinn dragi upp sé of einfölduð. Þannig bendi t.d. spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til þess að þörfin verði 3.500 íbúðir á ári til þess að mæta þörf, eða um 30 þúsund íbúðir á áratug. Þá sé spá Landsbankans allt önnur en t.d. er miðað við opinbera spá Hagstofunnar um íbúaþróun til næstu ára. „Fjöldi íbúa á hverja íbúð í fortíð er ekki góður mælikvarði á fjölda í íbúð sem markar þörf fyrir íbúðir litið til næstu ára, sem sagt í framtíð.“ 

Ábyrgðarhluti hjá bankanum

Jafnframt kemur fram í fréttinni að SI bendi á að hlutfallið sé óvenju hátt hér miðað við í öðrum ríkjum og sennilegt sé að við munum færast nær því sem þar tíðkast. „Það er ábyrgðarhluti af hálfu Landsbankans að setja fram mat á íbúðaþörf með betur ígrunduðum og rökstuddum hætti […] Rétt væri af hálfu bankans að birta sviðsmyndir sem sýndu næmi niðurstaðna fyrir ofangreindum þáttum og með tilvísun í m.a. niðurstöður HMS og Hagstofunnar. Fara SI fram á að svo sé gert.“

Morgunblaðið / mbl.is, 23. október 2021.