Fréttasafn



4. okt. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Málstofa um notkun á Skráargatinu

Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Samtök iðnaðarins efna til málstofa fyrir matvælaframleiðendur og innflytjendur um notkun á matvælamerkinu Skráargatið sem hefur það að markmiði að hvetja neytendur til að velja hollari valkost í matvöruverslunum. Málstofan er haldin miðvikudaginn 19. október kl. 14-16 í Húsi atvinnulífsins. 

Fundarstjóri er Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

Dagskrá

  • Kl. 14:00 til 14:40 Mataræði á Íslandi – sóknarfæri! - Jóhanna E. Torfadóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjórar næringar hjá embætti landlæknis
  • Kl. 14:30 til 15:10 Hvaða vörur má merkja með Skráargatinu? Grímur Ólafsson, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun
  • Kl. 15:10 til 15:25 Reynslusaga af notkun Skráargatsins á vörum hjá Myllunni Svandís Erna Jónsdóttir, gæðastjóri hjá Myllunni
  • Kl. 15:30 – 16:00 Umræður

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.