Fréttasafn



23. apr. 2018 Almennar fréttir

Málþing um grænni byggð

Bryndís Skúladóttir, sviðsstjóri framleiðslusviðs SI verður meðal fyrirlesara á málþingi um græna byggð sem haldið verður í Veröld - húsi Vigdísar fimmtudaginn 26. apríl sem er Vistbyggðardagurinn. Erindi Bryndísar ber yfirskriftina Staðan og framtíðaráskoranir í byggingariðnaði. Auk Bryndísar eru fjölmargir innlendir og erlendir fagaðilar sem flytja erindi. Vistbyggðardagurinn er skipulagður af Vistbyggðarráði í samstarfi við Framkvæmdasýslu ríkisins, Mannvirkjastofnun og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. 

Hægt er að skrá sig á málþingið hér

Dagskrá  

  • 13:00 Velkomin Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vistbyggðarráðs
  • 13:05 Green Building developments in Denmark Mette Qvist, framkvæmdastjóri Green Building Council Denmark
  • 13:35 Grænar áherslur Framkvæmdasýslu ríkisins – nútíð og framtíð Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslunnar
  • 13:50 Græn bygging í íslensku samhengi ÓIafur H. Wallevik, prófessor við HR og forstöðumaður Rb. hjá Nýsköpunarmiðstöð
  • 14:00 Grænar áherslur í Reykjavík Dagur B. Eggertsson borgarstjóri 
  • 14:15 Green urban planning, new developments and ideas for Reykjavík, Eric Holding, architect and urban designer 
  • 14:45 Kaffihlé 
  • 15:00 Minni sóun, vistvæn þróun Þórður Karlsson, gæða- og öryggisstjóri Íslenskra aðalverktaka (ÍAV)
  • 15:15 Ógöngur í bílaborg Gísli Marteinn Baldursson borgarfræðingur
  • 15:30 Græn Búseta til framtíðar Ágústa Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Búsetu
  • 15:40 BREEAM vottun og umhverfisáherslur Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Efla Elín Vignisdóttir, Verkís, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Mannvit 
  • 16:05 Reynsla IKEA: Bygging Svansvottaðs fjölbýlishúss Guðný Kamilla Aradóttir, markaðsumhverfisfulltrúi IKEA
  • 16:15 Staðan og framtíðaráskoranir í byggingariðnaði Bryndís Skúladóttir, Samtök iðnaðarins
  • 16:30 Léttar veitingar / Aðalfundur Vistbyggðarráðs klukkan 17