Fréttasafn



29. jún. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Margra milljarða skattahækkun dregur úr íbúðauppbyggingu

„Nú ætla stjórnvöld að þrengja enn frekar að íbúðauppbyggingu með frekari hækkunum. Í nýsamþykktri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar koma fram áform um að hækka virðisaukaskatt af byggingu íbúða. Um er að ræða margra milljarða króna hækkun á sköttum sem dregur úr íbúðauppbyggingu og hækkar þannig verð íbúða,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars í Morgunblaðinu þar sem greint er frá að háir vextir og ströng lántökuskilyrði séu meginskýringin á lengri sölutíma nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu líkt og komi fram í könnun sem Outcome framkvæmdi fyrir SI meðal verktaka sem byggja íbúðir á eigin reikning. Ingólfur segir að í könnuninni komi fram að 80% stjórnenda þessara fyrirtækja séu sammála um að trega sölu nýrra íbúða megi rekja til hás vaxtastigs. „Þá nefna 67% svarenda að strangari lántökuskilyrði íbúðakaupenda hafi lengt sölutíma.“ 

Morgunblaðið, 27. júní 2026.

Morgunbladid-27-06-2026