Fréttasafn



10. apr. 2024 Almennar fréttir Mannvirki

Meistaradeild SI verður á stórsýningunni Verk og vit

Stórsýningin Verk og vit verður haldin í sjötta sinn dagana 18.-21. apríl í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal. Á sýningunni verður fjöldi fyrirtæja sem sýnir það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum. Samtök iðnaðarins eru meðal bakhjarla sýningarinnar ásamt Byko, Landsbankanum, mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.

Meistaradeild SI verður með kynningarbás á sýningunni þar sem vakin verður athygli á meistaranum.is þar sem hægt er að finna meistara í eftirtöldum 13 meistarafélögum; Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara, Félag blikksmiðjueigenda, Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi, Meistarafélag Suðurlands, Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði, Málarameistarafélagið, Meistarafélag húsasmiða, Meistarafélag byggingarmanna á Suðurnesjum, Samtök rafverktaka, Múrarameistarafélag Reykjavík, Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Meistarafélag byggingamanna Vestmannaeyja og Félag pípulagningameistara. 

Auglysing_loka_1712739920325