Fréttasafn



25. jan. 2017 Almennar fréttir Menntun

Menntadagur atvinnulífsins og afhending menntaverðlauna

Menntadagur atvinnulífsins 2017 verður haldinn fimmtudaginn 2. febrúar  á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30 -12.30. Erindi verða flutt frá kl. 8.30-10.15 og forseti Íslands afhendir menntaverðlaun atvinnulífsins. Frá kl. 10.45-12.15 verða þrjár málstofur með mismunandi áherslum. Skráning.

Þetta er í fjórða skipti sem menntadagur atvinnulífsins er haldinn en hann er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. 

Dagskrá kl. 8.30 – 10.15

Íslensk máltækni, atvinnulífið og stafrænn heimur

  • Björgólfur Jóhannsson, formaður SA
  • Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra
  • Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Háskóla Íslands fjallar um íslensku í stafrænum heimi
  • Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Símanum, segir frá áhrifum máltækni á rekstur og þjónustu fyrirtækja
  • Þórarinn Eldjárn: „Á íslensku má alltaf finna svar.”
  • Jón Guðnason, lektor við Háskólann í Reykjavík. Að tala íslensku við tölvurnar.
  • Guðfinna S. Bjarnadóttir, málið og atvinnulífið

Í lok dagskrár afhendir forseti Íslands menntaverðlaun atvinnulífsins

Fundarstjóri er Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls

Málstofur kl. 10.45 – 12.15

Fagháskólinn

  • Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, ráðgjafi hjá Capacent
  • Runólfur Ágústsson, ráðgjafi mennta og menningarmálaráðuneytis
  • Sólveig Lilja Snæbjörnsdóttir, fagstjóri starfsmenntamála VR
  • Pallborðsumræður auk frummælenda taka þátt Jón B. Stefánsson skólameistari Tækniskólans, Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
  • Fundarstjóri: Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA

 

Tækniþróun og breyttar áherslur í menntamálum

  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, námssálfræðingur hjá Tröppu
  • Ingvi Hrannar Ómarsson, Grunnskólum Skagafjarðar
  • Ingvi Ásgeirsson og Trausti Björn Ríkharðsson hjá BL
  • Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
  • Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur
  • Pallborðsumræður auk frummælenda taka þátt Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Haukur Harðarson, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
  • Fundarstjóri: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI.

 

Hæfni, fræðsla og arðsemi í ferðaþjónustu

  • Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF
  • David Allen, framkvæmdastjóri Fólks í fyrirrúmi (e. People 1st), Skotlandi
  • María Guðmundsdóttir, fræðslustjóri SAF
  • Pallborðsumræður þar sem þátt taka Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála, Ásberg Jónsson, stjórnarformaður Nordic Visitor, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður starfsmanna -og gæðasviðs Icelandair hótela og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landsnámssetursins í Borgarmesi
  • Fundarstjóri: Óskar Finnsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela