Fréttasafn



25. jan. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Mun ekki standa á bygginga- og mannvirkjageiranum

Bygginga- og mannvirkjageirinn á langt í land með að ná þeim umsvifum sem við þekktum fyrir hrun hvort sem horft er til fjölda launþega, fjölda fyrirtækja eða rekstrartekna á föstu verðlagi til ársins 2016. Þetta kemur fram í grein Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs SI, í ViðskiptaMogganum í dag. Hún bendir á að árið 2008 hafi 16.280 verið starfandi í greininni sem sé nær 32% fleiri en á síðasta ári þegar 12.360 voru starfandi. Hún segir þetta til marks um að það muni ekki standa á atvinnugreininni að mæta frekari eftirspurn en Samtök iðnaðarins hafi bent á að á næstu misserum muni draga úr hagvexti og slakna á spennunni í hagkerfinu. Það merki að losna muni um framleiðsluþætti sem væri þá lag að nýta til frekari uppbyggingar. 

Mikilvæg stoð atvinnulífsins

Jóhanna Klara segir í greininni að árangur atvinnugreinarinnar hafi að mörgu leyti verið mjög sveiflukenndur í gegnum árin og langvarandi þörf eftir iðnmenntuðu starfsfólki hafi líka leitt til umræðu sem haft hafi áhrif á ásýnd og ímynd greinarinnar. Umræða um mikilvægi þessarar atvinnugreinar fyrir samfélagið hafi því oft átt það til að gleymast í upptalningu á þeim mikilvægu stoðum atvinnulífsins sem við viljum byggja á, hlúa að og þróa til framtíðar. Hún segir að leita þurfi sameiginlegra leiða til að auka framleiðni í eftirlits- og leyfismálum í þeim tilgangi að stytta framleiðslutíma, auka sveigjanleika í kerfinu og lækka byggingarkostnað.

Atvinnugrein sem greiðir hvað mest í opinber gjöld

Í grein Jóhönnu Klöru kemur fram að ríflega 6,7% allra fyrirtækja í landinu starfi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og greinin sé ein af þeim greinum hagkerfisins sem greiði hvað mest í opinber gjöld en byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð greiddi 7,3 ma.kr í opinber gjöld á árinu 2016 samanborið við 4,5 ma.kr. þegar fjárfesting fór að taka við sér í hagkerfinu í núverandi efnahagsuppsveiflu. Þá segir hún að veltan í greininni hafi aukist sem nemur 14,4% á milli ára og sé það ein mesta aukning meðal atvinnugreina hagkerfisins á þeim tíma. Veltan í greininni sé um 7,2% af heildarveltu allra atvinnugreina hagkerfisins á þessum tíma í fyrra samanborið við 6,4% á sama tíma árið á undan.

Hér er hægt að lesa grein Jóhönnu Klöru í heild sinni.