Fréttasafn



17. jún. 2020 Almennar fréttir Nýsköpun

Nýtt tímarit SI um nýsköpun

Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins. Með því að styðja við umgjörð og hvata til nýsköpunar í nýjum og rótgrónum fyrirtækjum eflum við samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Í því ljósi hafa samtökin ráðist í útgáfu á nýju 128 síðna tímariti þar sem horft er á nýsköpun út frá fjölmörgum sjónarhornum.

Í tímaritinu er skyggnst inn í ótal greinar íslensks iðnaðar og dregnar fram fjölbreyttar hliðar nýsköpunar. Horft er til frumkvöðla og stjórnenda í nýjum atvinnugreinum eins og líftækni, gagnaversiðnaði og tölvuleikjaiðnaði. En einnig er rætt við þá sem stunda nýsköpun í rótgrónari iðnaði, líkt og matvælaiðnaði, áliðnaði og byggingariðnaði. Í tímaritinu kemur fram í grein aðalhagfræðings SI að fram til ársins 2050 þurfi að skapa 60 þúsund ný störf. Þá kemur fram sýn forseta Íslands og nýsköpunarráðherra á hvert mikilvægi nýsköpunar er fyrir Ísland, auk þess sem formaður SI og framkvæmdastjóri SI segja frá því hvers vegna samtökin leggja áherslu á nýsköpun og hvaða þýðingu það hefur að hvetja til sóknar á því sviði. Ritstjóri tímaritsins er Margrét Kristín Sigurðardóttir.

Timarit-SI_forsida_

Hér er hægt að nálgast tímaritið í PDF-útgáfu.

Hér er hægt að nálgast tímaritið í Issuu.