Fréttasafn



13. des. 2022 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Opinn fundur HMS og SI um íbúðamarkaðinn

Þarf að byggja meira? er yfirskrift opins hádegisfundar á vegum HMS og SI sem haldinn verður í dag þriðjudaginn 13. desember í húsnæði HMS, Borgartúni 21, kl. 12:00-12:45. Tilefnið er birting rauntímaupplýsinga um fjölda íbúða í byggingu samkvæmt mannvirkjaskrá.

Í fyrsta sinn er hægt að sjá fjölda íbúða í byggingu á einum stað. Á gagnvirku Íslandskorti á vef HMS verður nú hægt að skoða allar íbúðir í byggingu sem og öll byggingaráform í rauntíma. Þannig geta sveitarfélög, verktakar, lánastofnanir, söluaðilar byggingarvara, fasteignasalar og fleiri hagaðilar nú loksins byggt áætlanir sínar á staðreyndum. Upplýsingarnar eru teknar upp úr mannvirkjaskránni og uppfærast samhliða skráningum í rauntíma.

Á fundinum verður einnig fjallað um íbúðaþarfagreiningu HMS í ljósi nýjustu mannfjöldatalningar Hagstofunnar sem vakið hefur nokkra athygli og umræður.

Dagskrá

  • Birting rauntímaupplýsinga um fjölda íbúða í byggingu samkvæmt mannvirkjaskrá - Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni, HMS
  • Íbúðaþörf: Helstu drifkraftar og óvissa - Þorsteinn Arnalds, tölfræðingur, HMS
  • Grundvöllur aukins stöðugleika á húsnæðismarkaði - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur, SI

Fundurinn verður einnig sendur út í streymi. Hér er hægt að fylgjast með streymi fundarins.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á fundinum.

Dagskra-Vidburdir2