Fréttasafn



19. feb. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðherra fær fyrstu Köku ársins

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, tók á móti fyrstu Köku ársins í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í morgun.

Landssamband bakarameistara efndi nýlega til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin var haldin í samstarfi við Ölgerðina og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi bitter marsipan og appelsínutröffel frá Odense. Sigurkakan hlýtur nafnbótina „Kaka ársins 2019“ og er höfundur hennar Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari og eigandi Bernhöftsbakarís.

Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt land á morgun og verður til sölu það sem eftir er ársins.

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Jóhannes Felixson, formaður Landssambands bakarameistara, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurður Már Guðjónsson, bakarameistari og eigandi Bernhöftsbakarís, og Gunnar Örn Gunnarsson hjá Ölgerðinni.

Afhending-a-Koku-arsins-2019-2-

Umfjöllun

mbl.is, 19. febrúar 2019.