Fréttasafn



12. maí 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna um bætta nýtingu lífrænna aukaafurða á Íslandi

Úrgangur í dag – auðlind á morgun er yfirskrift ráðstefnu um bætta nýtingu lífrænna aukaafurða sem haldin verður 24. maí næstkomandi kl. 9-14 á Grand Hótel Reykjavík. Skráning er hafin á ráðstefnuna og er aðgangur ókeypis. Fundarstjóri er Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís.

Ráðstefnan er lokaliður í formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni um Norræna lífhagkerfið (NordBio). Markmið NordBio er að gera Norðurlöndin leiðandi í sjálfbærri framleiðslu og nýtingu lífauðlinda í því skyni að draga úr sóun og efla nýsköpun, grænt atvinnulíf og byggðaþróun. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Bændasamtök Íslands, FENÚR, Landgræðslu ríkisins, Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Sjávarklasann. 

Dagskrá

  • Ávarp ráðherra umhverfis- og auðlindamála, Björt Ólafsdóttir

Stóra myndin

  • Lífhagkerfið: Tækifæri á tímum efnahagslegra umbreytinga, Sigríður Þormóðsdóttir, Innovation Norway
  • Græðum við ekki nógu mikið, Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
  • Lífauðlindir Norðurlandanna, Dr. Daði Már Kristófersson, Háskóli Íslands

Áskoranir

  • Aukaafurðir dýra – reglugerðir á mannamáli, Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Matvælastofnun  
  • Skordýr og rófur, Búi Bjarmar Aðalsteinsson
  • Játningar skordýrabónda, Gylfi Ólafsson, Víur – Ræktunarfélag um fóðurskordýr

Lausnir og nýsköpun

  • Auðlindatorgið – gagnvirk lausn til að skapa verðmæti, Hildur Harðardóttir, Umhverfisstofnun
  • Bestun á nýtni lífrænna aukaafurða, ReSource International
  • Úr úrgangi í úrvalsvöru, Ágúst Torfi Hauksson, Norðlenska
  • Seyra í sókn, Magnús Jóhannsson, Landgræðsla ríkisins
  • Fiskeldi – getum við minnkað umhverfisáhrifin? Ragnheiður Þórarinsdóttir, Samrækt
  • Er geitin illa nýtt og verðmæt aukaafurð? Framtíð íslensku geitarinnar, Listaháskóli Íslands