Fréttasafn



26. apr. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna um hvernig á að skapa samkeppnisforskot

Manino í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu um leiðir fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki til að bæta samkeppnishæfni á tímum tækniframfara og krefjandi starfsumhverfis. Ráðstefnan fer fram þriðudaginn 21. maí kl. 12.30-17.00 í Hörpu. Félagsmenn SI fá afslátt af miðaverði ráðstefnunnar. Yfirskrift ráðstefnunnar er Umbylting í iðnaði - hvernig skapa fyrirtæki samkeppnisforskot á tímum óvissu og breytinga? 

Sérstakir gestir ráðstefnunnar eru:

  • Jim Womack, upphafsmaður straumlínustjórnunar (e. lean). Höfundur metsölubókanna The Machine That Changed the World og Lean Thinking sem ollu byltingu í stjórnun fyrirtækja um allan heim.
  • Karl Wadensten, eigandi bandaríska framleiðslu- og fjölskyldufyrirtækisins Vibco. Eftir að hafa staðið frammi fyrir alvarlegum vanda í rekstri réðst hann í breytingar á rekstri og sagði sóun innan fyrirtæksins stríð á hendur.
  • Bret Watson, er einn af forstjórum alþjóðlega norska fyrirtækisins Jötul. Fyrirtækið hefur á síðustu árum náð eftirtektaverðum árangri með því að innleiða stöðugt umbótaferli í sína framleiðslu. Toyota notar m.a. Jötul sem dæmi um vel heppnaða innleiðingu lean aðferðanna.

Dagskrá 
12:30-12:45 Opnunarræða Samtaka iðnaðarins, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
12:45-13:15 Hvað er lean og hvernig hjálpar það iðnaðinum? Jim Womack
13:15-13:45 Samkeppnisforskot með lean – Bret Watson
13:45-14:15 Förum í stríð við sóun! – Karl Wadensten
14:15-14:30 Umbylting hjá Hringrás – Daði Jóhannesson
14:30-15:00 Kaffipása
15:00-15:30 Lean er vaxtarstefna – Bret Watson
15:30-16:00 Við vinnum þetta með teymum – Karl Wadensten
16:00-16:30 Lean á tímum óvissu og tæknibreytinga – Jim Womack
16:30-16:45 Ákall um aðgerðir! Pétur Arason, Manino, lokar ráðstefnunni

Maríanna Magnúsdóttir, Chief Happiness Officer hjá Manino, er fundarstjóri ráðstefnunnar.

Miðaverð er 25.000 kr. og 21.500 kr. fyrir aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins. Á vef Tix er hægt að kaupa miða.