Fréttasafn



25. jún. 2025 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

SI leggjast gegn boðaðri leið um skattlagningu orkumannvirkja

Samtök iðnaðarins, SI, hafa sent umsögn til innviðaráðuneytisins vegna áforma um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga, sem fela í sér að fella niður undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Samtökin telja ljóst að milljarða aukakostnaður orkufyrirtækja sem áformin fela í sér verði velt út í raforkuverð til almennings og fyrirtækja án þess að fullvissa sé fyrir aukinni orkuöflun.

Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að skoða aðrar leiðir til að tryggja nærsamfélagi orkumannvirkja sanngjarnari hlutdeild í ávinningi af raforkuframleiðslu, svo sem með breyttri skiptingu tekna á milli ríkis og sveitarfélaga.

Mikil hækkun fasteignaskatts gæti leitt til hærra raforkuverðs

Í umsögn SI kemur fram að verði áformin að lögum muni fasteignamat rafveitna hækka úr 82 milljörðum króna í 1.358 milljarða, sem gæti haft í för með sér margföldun á fasteignaskatti. Slíkar breytingar gætu aukið útgjöld orkufyrirtækja verulega og verið velt yfir á almenning og atvinnulíf í formi hærra raforkuverðs.

SI benda á að orkukostnaður fyrirtækja og heimila hafi nú þegar hækkað umtalsvert síðustu ár. Líkt og kemur fram í nýútgefinni greiningu Raforkueftirlitsins hefur raforkukostnaður heimila hækkað um tæp 11% á föstu verðlagi á tímabilinu 2020–2025 og fyrirtæki sem nota mikið rafmagn hafa séð kostnað hækka um 24% sem jafngildir 5% árlegri hækkun. Raforkukostnaður dæmigerðs álvers hefur að sama skapi hækkað um 25% í bandaríkjadölum á föstu verðlagi á sama tímabili.

Áformin grafa undan samkeppnishæfni og stöðugleika

Samtök iðnaðarins vara við því að þessi kostnaðarauki muni bitna sérstaklega á orkusæknum iðnaði, sem er burðarás í íslenskum útflutningi og verðmætasköpun. Ísland keppi á alþjóðlegum mörkuðum þar sem orkuverð sé lykilþáttur í samkeppnishæfni. Án þess að samhliða komi aukin orkuöflun, megi búast við áframhaldandi hækkunum sem geti grafið undan atvinnuuppbyggingu og fjárfestingu.

Kalla eftir öðrum leiðum

SI leggja til að stjórnvöld skoði aðrar leiðir til að styrkja tekjustofna sveitarfélaga án þess að auka álögur á raforkuframleiðendur sérstaklega. Til dæmis sé hægt að breyta skiptingu skatttekna milli ríkis og sveitarfélaga.

Hér er hægt að lesa umsögnina í heild sinni.