Fréttasafn



25. okt. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun Starfsumhverfi

Skattahvatar R&Þ hafa stóraukið fjárfestingu í nýsköpun

Skattahvatarnir hafa sannað gildi sitt rækilega og stóraukið fjárfestingu í nýsköpun. Þannig stuðla þeir að hærri framleiðni í hagkerfinu og bæta lífskjör,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í Viðskiptablaðinu um nýja greiningu SI þar sem kemur fram að skattahvatar vegna fjárfestinga í rannsóknum og þróun (R&Þ) sé eitt af mikilvægustu tækjum ríkisins til að hafa áhrif á framtíðarhagvöxt og verðmætasköpun.

Í Viðskiptablaðinu kemur fram að útflutningstekjur hugverkaiðnaðar hafi tvöfaldast á fimm árum og námu um 240 milljörðum króna í fyrra. Útflutningur greinarinnar hafi numið 121 milljarði króna á fyrri helmingi þessa árs samanborið við tæplega 104 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Um sé að ræða tæplega 17% aukningu. Ef gert sé ráð fyrir sama vexti á seinni helmingi árs verði útflutningsverðmæti greinarinnar nær 280 milljarðar króna á árinu. Gangi það eftir hafi útflutningsverðmæti greinarinnar þrefaldast á einum áratug. „Þetta sýnir glöggt gróskuna og vöxtinn í hugverkaiðnaði undanfarin ár. Við spáðum því á Iðnþingi í vor að hugverkaiðnaður yrði verðmætasta útflutningsgrein þjóðarinnar í lok yfirstandandi áratugar en það byggir á áætlunum fyrirtækjanna sjálfra,“ segir Sigurður.

Hér er hægt að lesa viðtalið við Sigurð í heild sinni.

Hér er hægt að nálgast Viðskiptablaðið.

Viðskiptablaðið, 25. október 2023.

Vidskiptabladid-25-10-2023