Fréttasafn



22. nóv. 2019 Almennar fréttir

Skúlaverðlaun fyrir YOLO og Heiðalönd

Skúlaverðlaunin 2019 voru afhent í gær í lok fyrsta opnunardags sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Verðlaunin hlaut Guðný Hafsteinsdóttir, keramiker og hönnuður, sem hannar undir merkinu Gudnyhaf. Verðlaunin hlaut hún fyrir jólakúlur sem kallast YOLO og eru nýstárlegar jólakúlur úr steyptu postulíni. Að auki var veitt viðurkenning en hana hlaut Philippe Ricart fyrir handofin sjöl/teppi sem hann nefnir Heiðalönd og er með litum og munstri frá heiðlóunni. Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og afhenti Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, verðlaunin en þau eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. Á myndinni hér fyrir ofan er Guðný Hafsteinsdóttir, Philippe Ricart og Sigurður Hannesson.

Um hugmyndina að YOLO segir Guðný: „YOLO er stytting á You Only Live Once, sem er enskt orðatiltæki sem ungt fólk notar bæði á Íslandi og erlendis. En jörðin okkar lifir líka aðeins einu sinni og þess vegna langaði mig að nefna kúlurnar þessu nafni. YOLO kúlurnar vísa þó ekki aðeins í jörðina heldur líka himintunglin, miðbaug og hringi Satúrnusar.“

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur stendur til 25. nóvember og eru þátttakendur 55 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni gátu tilkynnt nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Skilyrðin voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Dómnefnd skipuðu María Kristín Magnúsdóttir, skóhönnuður, og Ýr Jóhannsdóttir, textílhönnuður.

Skulaverdlaun-2019-3-Guðný Hafsteinsdóttir, keramiker og hönnuður, við jólakúlurnar.

Skulaverdlaun-2019-2-_1574435216119Philippe Ricart með handofin sjöl/teppi.