Beint í efni

SI og Ís­lands­stofa efla samstarf um alþjóðlega sókn fyrirtækja

Freyr Friðfinnsson og Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttur, viðskiptastjórar hjá Samtökum iðnaðarins, funduðu á dögunum með Ernu Björnsdóttur frá Íslandsstofu um nánara samstarf til að styðja við alþjóðlega sókn íslenskra fyrirtækja.

Á fundinum var rætt hvernig efla megi upplýsingaflæði og samstarf um erlenda viðburði, sendinefndir og önnur sóknarfæri á erlendum mörkuðum. Sérstök áhersla var lögð á að miðla þörfum og áhuga aðildarfyrirtækja SI til Íslandsstofu þegar ný verkefni eru í undirbúningi.
SI og Íslandsstofa eiga nú þegar í nánu samstarfi á mörgum sviðum. Markmiðið er að byggja áfram á þeim grunni, styrkja tengslin enn frekar og skapa fleiri tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum.

Á myndinni eru Freyr Friðfinnsson, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttur og Erna Björnsdóttir.

SI og Íslandsstofa efla samstarf um alþjóðlega sókn fyrirtækja - Samtök Iðnaðarins