Fréttasafn



14. apr. 2015 Iðnaður og hugverk

Slush Play í Reykjavík

 

Slush Play, ráðstefna í leikjaiðnaði og sýndarveruleika, verður haldin í fyrsta sinn helgina 28.-29. apríl í Gamla Bíó. Ráðstefnan er haldin undir merkjum og í samstarfi við Slush ráðstefnuna í Finnlandi sem er ein stærsta tækni- og sprotaráðstefna Evrópu.

Tilgangur Slush PLAY er að skapa vettvang fyrir norræna frumkvöðla í leikjaiðnaði og innlenda og erlenda fjárfesta sem og bransatengda aðila. Sprotafyrirtæki sem sækja ráðstefnuna fá tækifæri til að hitta fjárfesta á einkafundum og valin teymi kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd.

Staðfestir fyrirlesarar eru Davíð Helgason hjá Unity Technologies, Susana Meza Graham hjá Paradox Interactive, Dean Hall stofnanda RocketWerkz og DayZ, David Gardner partner hjá London Venture Partners, Hilmar Veigar hjá CCP og Þorsteinn hjá Plain Vanilla.

Að skipulagningu koma nokkrir lykilaðilar í íslenskum leikjaiðnaði, s.s. Hilmar Veigar hjá CCP, Thor hjá Sólfar, Þorsteinn hjá Plain Vanilla og Jónas Antonsson hjá Raw Fury Games.

Hægt er að nálgast miða á reykjavik.slush.org

Sjá nánar