Stórsýningin Verk og vit haldin í sjöunda skiptið
Stórsýningin Verk og vit verður haldin dagana 19.-22. mars 2026 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og er það í sjöunda skiptið sem sýningin er haldin. Jafnframt verður stórafmæli sýningarinnar fagnað, því 20 ár verða liðin frá fyrstu sýningunni sem fram fór vorið 2006. AP almannatengsl eru framkvæmdaraðili sýningarinnar en samstarfsaðilar eru mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn.
Í tilkynningu segir að Verk og vit sé ætlað að styrkja tengsl milli fagaðila og auka vitund almennings um starfsemi, vörur og þjónustu þeirra sem starfi í þessum greinum. Mikill áhugi hafi jafnan verið á Verk og vit og komu um 25.000 gestir á sýninguna nú í vor, sem hafi verið svipaður fjöldi og á sýningunum þar á undan. Þá hafi sýnendur verið afar áhugasamir um þátttöku og sem dæmi hafði allt sýningarsvæði selst upp rúmu hálfu ári fyrir síðustu sýningu.
Rúmlega 100 sýnendur tóku þátt í Verk og vit 2024 og voru þar m.a. byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir, fjármálafyrirtæki, ráðgjafafyrirtæki og sveitarfélög. Í viðhorfskönnun sem könnunarfyrirtækið Zenter gerði meðal sýnenda sögðust 100% þeirra sem svöruðu hafa verið ánægðir með sýninguna og jafnframt sögðust allir sem svöruðu hafa náð markmiðum sínum með þátttöku í sýningunni.
Samhliða sýningunni hefur verið haldin ráðstefna og aðrir viðburðir þar sem fjallað er um byggingariðnað, skipulagsmál, mannvirkjagerð og menntamál frá ýmsum sjónarhornum.