Telja nauðsynlegt að nýr meirihluti í borginni skipti um kúrs
Ákvörðun borgarstjóra um að slíta meirihlutasamstarfinu, meðal annars vegna stefnu i húsnæðis- og skipulagsmálum, eru líklega bestu fréttir sem ríkisstjórnin gat fengið úr Reykjavík þar sem með því skapast tækifæri til að gera betur í húsnæðismálum. Þetta segja Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, meðal annars í grein á Vísi. Þau segja jafnframt að ef marka megi orð borgarstjóra liggi fyrir að stefna Samfylkingar og Pírata í Reykjavík hafi ekki stutt við aukna og hagkvæma uppbyggingu íbúða. Meðan slík sjónarmið ráði för við stjórn Reykjavíkurborgar sé ljóst að ríkisstjórnin muni hvorki ná markmiðum sínum í húsnæðismálum né í efnahagsmálum til lengri tíma litið. Sigurður og Jóhanna Klara segja í greininni að nú sé lag að skipta um kúrs og auka uppbyggingu fjölbreyttra íbúða í Reykjavík i takt við stefnu ríkisstjórnarinnar. Aðgerðir borgarinnar til þess að hraða húsnæðisuppbyggingu geti ekki beðið. Til að byggja fleiri íbúðir þurfi að skipuleggja meira og hraðar, einfaldlega leyfisveitingaferli og auka samstarfsviðleitni við byggingaraðila. „Nýr meirihluti Reykjavíkurborgar, hver sem hann verður, hefur tækifæri til að sanna að hann hefur skilning á alvöru málsins og sýna ákveðni í verki. Skýr stefna og skjót viðbrögð eru ekki bara æskileg heldur nauðsynleg.“
Þolinmæði almennings á þrotum þegar komi að húsnæðismálum
Þau segja í greininni að þessa dagana ræði forystufólk í borgarstjórn Reykjavíkur um myndun meirihluta. Ljóst sé að þau sem ná saman þurfi að setja sér skýra stefnu um uppbyggingu í húsnæðismálum strax í upphafi. Þolinmæði almennings sé á þrotum þegar komi að húsnæðismálum og því hafi málaflokkurinn eðlilega verið ofarlega á baugi í aðdraganda nýafstaðinna alþingiskosninga þrátt fyrir að sveitarfélögin hafi skipulagsvaldið hjá sér.
Stefna meirihlutans í Reykjavík hefur haft afgerandi áhrif á efnahagsmál á Íslandi
Þá kemur fram í grein þeirra að það sé staðreynd að stefna meirihlutans í Reykjavík í skipulagsmálum undanfarinn áratug eða meira hafi haft afgerandi áhrif á efnahagsmál á Íslandi, enda stærsta sveitarfélag landsins. Landsmönnum hefur fjölgað verulega en íbúðauppbygging í Reykjavík hefur ekki haldið í við vöxt og viðgang samfélagsins. Því til viðbótar hafi uppbyggingin verið kostnaðarsöm og ekki mætt fjölbreyttum þörfum íbúa. Þau segja að þessi stefna hafi átt stóran þátt í mikilli verðbólgu og háum vöxtum sem komi við hvert einasta heimili landsins og hvert einasta fyrirtæki. Það sé því skýrt ákall um að forystufólk borgarinnar hafi þetta í huga við myndun nýs meirihluta.
Meirihlutinn með skammsýni og kreddum skammtað lóðir úr hnefanum undanfarin ár
Í greininni segja Sigurður og Jóhanna Klara að þótt nægt land sé í Reykjavík undir íbúðabyggð hafi meirihlutinn með skammsýni og kreddum í skipulagsmálum skammtað lóðir úr hnefanum undanfarin ár. Á sama tíma hafi gjaldtaka borgarinnar líka stóraukist sem skili sér í hærra verðlagi íbúða. Þau segja að stærsta sveitarfélag landsins og eina borgin ætti að fara á undan með góðu fordæmi en því hafi verið öfugt farið og hafi nágrannasveitarfélög vaxið hlutfallslega hraðar. Þegar á þurfi að halda sé verktökum kennt um tafir á uppbyggingu þegar öllum sé ljóst að borgaryfirvöld nýta sér upplýsingaóreiðu sér í vil. Sigurður og Jóhanna Klara segja að þessu þurfi að breyta. Fyrri ríkisstjórn hafi áttað sig á vandanum en hafi ekki fengið sveitarfélögin í lið með sér.
Ný ríkisstjórn með áform um stórátak í íbúðauppbyggingu
Jafnframt kemur fram í grein Sigurðar og Jóhönnu Klöru að ný ríkisstjórn átti sig á því hvernig vandinn sé vaxinn og hafi áform um stórátak í íbúðauppbyggingu. „Samfylkingin undir forystu Kristrúnar Frostadóttur boðaði metnaðarfulla stefnu í húsnæðismálum í aðdraganda kosninga og Viðreisn var á sama stað. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, skynjar betur en flestir vandann í húsnæðismálum og hefur þegar talað fyrir aukinni uppbyggingu íbúða í anda stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar. Stefna ríkisstjórnarinnar bendir til þess að horft verði til fjölbreyttrar uppbyggingar en ekki bara til félagslegra íbúða. Til þess að metnaðarfull og um leið nauðsynleg áform ríkisstjórnarinnar gangi eftir þarf borgarstjórn Reykjavíkur, stærsta sveitarfélags landsins, að hraða úthlutun lóða og endurskoða stefnu sína í húsnæðis- og skipulagsmálum. Ríki og borg þurfa að ganga í takt en þar sem skipulagsvaldið er hjá Reykjavíkurborg þá ræður borgin för.“
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Vísir, 11. febrúar 2025.
Viðskiptablaðið, 11. febrúar 2025.