Fréttasafn



25. sep. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Innviðir Mannvirki Orka og umhverfi Starfsumhverfi

Þarf að auka orkuöflun og virkja meira

„Það þarf að auka orkuöflun, það þarf að virkja meira. Það er grunnatriðið. Síðan þarf að styrkja innviðina og efla flutningskerfið til að bæta nýtinguna, þannig að við getum komið þeirri orku sem til er á rétta staði,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag.

Ekki til raforka til uppbyggingar

Þegar Sigurður er spurður hvort þess séu mörg dæmi að fyrirtæki sem hug hafa haft á starfsemi hér á landi hafi þurft frá að hverfa sökum þess að ekki hafi reynst unnt að útvega þeim raforku til starfseminnar svarar hann: „Við þekkjum dæmi um það og líka dæmi um verkefni sem eru í biðstöðu, fyrirtæki hafa hér og þar um landið haft áhuga á að stækka en eiga í erfiðleikum með að fá meiri raforku. Það kannast allir við þetta í öllum landshlutum. Það er áhugi á uppbyggingu sem ekki verður af vegna þess að það er ekki til orka, eða þá að ekki er mögulegt að koma orkunni þangað sem þarf sem snýr þá að flutningskerfi raforku.“

Raforka orðinn takmarkandi þáttur á Íslandi

Sigurður nefnir einnig í fréttinni að á sama tíma sé samfélagið að vaxa og orkuþörf þar með vaxandi og einnig hafi orkuskipti og rafbílavæðing áhrif, þar sem meiri eftirspurn sé eftir raforku. „Í þessu sambandi er áhugavert að hugsa til þess að raforka er orðin takmarkandi þáttur á Íslandi sem er eitthvað sem við höfum ekki kynnst fyrr en á allra síðustu árum. Birtingarmynd þess er skerðingar Landsvirkjunar á raforku síðustu ár. Aðra birtingarmynd má sjá á Alþingi þar sem nokkur mál um raforkuöryggi sem snúa að raforkumarkaðinum hafa komið fram.“ Í fréttinni kemur fram að tvö slík mál komu fram á síðasta þingi en náðu ekki fram að ganga.

Skorti á raforku mætt með auknum innflutningi á olíu

Þá bendir Sigurður á að skorti á raforku sé mætt með auknum innflutningi og notkun á olíu og nefnir  fjarvarmaveitur, fiskvinnslur og fiskimjölsverksmiðjur. „Þetta er þvert á markmið stjórnvalda um að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti árið 2040. Ferli framkvæmda á Íslandi er mjög flókið, á sama tíma og önnur ríki eru að reyna að einfalda ferlið í þágu grænnar orkuöflunar hafa framkvæmdir hér verið fastar í kerfinu svo árum skiptir.“ Hann nefnir Hvammsvirkjun í því sambandi.

Erfitt fyrir landeldi og gagnaver að fá orku sem þarf

Sigurður segir í fréttinni mikinn áhuga á uppbyggingu í landeldi og ljóst að ýmis fyrirtæki í þeirri grein muni eiga erfitt með að fá þá orku sem til þarf. „Við þekkjum líka að um allan heim er mikil uppbygging gagnavera samhliða þróun gervigreindar og annarrar tækni sem kallar á uppsöfnun gagna og flókna útreikninga. Sú þjónusta er mjög eftirsótt á heimsvísu. Við vitum að gagnaver hér á landi hafa viljað auka umsvif sín á þessu sviði, en ekki fengið þá orku sem til þarf.“ 

Morgunblaðið / mbl.is, 25. september 2024.

Morgunbladid-25-09-2024