Fréttasafn



7. jún. 2019 Almennar fréttir

Þínar síður fyrir aðildarfyrirtæki

Hús atvinnulífsins hefur opnað þínar síður fyrir aðildarfyrirtæki einstakra samtaka og þar á meðal fyrir aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins. Á síðunum eru upplýsingar sem tengjast aðild að samtökunum og farvegir fyrir fyrirspurnir og verkbeiðnir. Unnt er að velja áskriftir að útgefnu efni, uppfæra tengiliði og skoða fjárhagslegar upplýsingar.

Notendur skrá sig inn sem einstaklingar með rafrænum skilríkjum og geta í kjölfarið veitt samstarfsmönnum aðgangsheimild. Innskráning á þínar síður er efst á forsíðu vefjar SI. 

Guðrún Reynisdóttir, verkefnastjóri, svarar spurningum og tekur við ábendingum á netfanginu minarsidur@sa.is.

Hér er hægt að nálgast þínar síður.