Hús atvinnulífsins hefur opnað þínar síður fyrir aðildarfyrirtæki einstakra samtaka og þar á meðal fyrir aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins. Á síðunum eru upplýsingar sem tengjast aðild að samtökunum og farvegir fyrir fyrirspurnir og verkbeiðnir. Unnt er að velja áskriftir að útgefnu efni, uppfæra tengiliði og skoða fjárhagslegar upplýsingar. Notendur skrá sig inn sem einstaklingar með rafrænum skilríkjum og geta í kjölfarið veitt samstarfsmönnum aðgangsheimild. Innskráning á þínar síður er efst á forsíðu vefjar SI. Guðrún Reynisdóttir, verkefnastjóri, svarar spurningum og tekur við ábendingum á netfanginu minarsidur@sa.is. Hér er hægt að nálgast þínar síður.
Þínar síður fyrir aðildarfyrirtæki
Þínar síður hafa verið opnaðar fyrir aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins.

Tengt efni
Það er að teiknast upp mjög kaldur vetur
Rætt er við Þorstein Víglundsson, formann SI, í Kastljósinu um byggingariðnað og stöðu efnahagsmála.

Stjórn Samtaka rafverktaka heimsækir Norðurál
Framkvæmdastjóri og starfsfólk Norðuráls tóku á móti stjórn Samtaka rafverktaka fyrir skömmu.

Samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar eykur forskot Íslands
Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, flutti erindi um samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar á Sjávarútvegsráðstefnunni.
