Umfang og áhrif tækni- og hugverkaiðnaðar á Íslandi
Í nýrri greiningu SI kemur fram að tækni- og hugverkaiðnaður sé öflug og fjölbreytt atvinnugrein og ein af megin undirstöðum hagsældar landsmanna. Verðmætasköpun greinarinnar þ.e. samtala launakostnaðar og hagnaðar í greininni nam ríflega 440 milljörðum króna á síðasta ári. Útflutningstekjur greinarinnar námu 369 milljörðum króna á því ári eða um 19% af heildar útflutningstekjum Íslands sem er meira en sjávarútvegurinn skilaði það ár. Velta greinarinnar nam nær 700 milljörðum króna sem er tæplega 10% af veltu viðskiptahagkerfisins. Um helmingur af veltu greinarinnar eru útflutningstekjur. Í greininni störfuðu í fyrra ríflega 18 þúsund manns. Skattspor greinarinnar var 186 milljarðar króna árið 2024.

Raunverulegt umfang tækni- og hugverkaiðnaðar er meira en ofangreindar tölur segja til um. Virðiskeðja greinarinnar teygir anga sína langt út fyrir hina eiginlegu starfsemi fyrirtækjanna sem starfa í greininni. Þau kaupa fjölbreytt aðföng og þjónustu af ótal aðilum úr öðrum geirum atvinnulífsins. Ávinningurinn af starfsemi greinarinnar margfaldast þannig og dreifist um allt samfélagið, landsmönnum til heilla.
Útflutningstekjur áttfaldast síðan 2008
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hafa vaxið hratt hér á landi á síðustu árum. Þær námu 369 milljörðum króna árið 2025, sem er áttföldun frá árinu 2008. Tækni- og hugverkaiðnaður er ein af fjórum stoðum útflutnings á Íslandi, en útflutningstekjur greinarinnar námu 19% af heildarútflutningstekjum Íslands á síðasta ári. Á síðasta ári voru útflutningstekjur greinarinnar í fyrsta sinn hærri en útflutningstekjur sjávarútvegs. Aukinn útflutningur greinarinnar felur í sér aukna verðmætasköpun, fjölgun vel launaðra starfa, aukinn fjölbreytileika í útflutningstekjum hagkerfisins og þar með aukinn efnahagslegan stöðugleika.

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.
Viðskiptablaðið, 14. apríl 2026.
Vísir, 14. apríl 2026.
RÚV, 14. apríl 2026.

