Umhverfisdagur atvinnulífsins verður rafrænn
Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn rafrænt miðvikudaginn 14. október kl. 8.30-10.00. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu. Viðburðinum verður streymt rafrænt á vef SA, samfélagsmiðlum og fjölmiðlum.
Dagskrá
Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Ávörp flytja:
- Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
- Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion
- Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra
- Ari Edwald, forstjóri MS
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða veitt tveimur fyrirtækjum og er það forseti Íslands sem afhendir viðurkenningar fyrir umhverfisframtak ársins og til umhverfisfyrirtækis ársins.