Fréttasafn



2. sep. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsproti ársins er 1939 Games sem sextánfaldaði veltu

Fyrirtækið 1939 Games hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Utanríkisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, afhenti Vaxtarsprotann í morgun í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í Laugardal.

1939 Games er tölvuleikjafyrirtæki sem gefur út leikinn KARDS en sögusvið leiksins er síðari heimsstyrjöldin. Velta fyrirtækisins jókst um 1.466% á milli áranna 2019 og 2020 þegar veltan fóru úr rúmum 15 milljónum króna í 244 milljónir króna. Um er að ræða metvöxt í veltu frá því Vaxtarsprotinn var fyrst afhentur árið 2007.

Tvö önnur fyrirtæki, Coripharma og Algalíf, hlutu einnig viðurkenningar. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf. Velta Coripharma jókst um 392% á milli áranna 2019 og 2020, fór úr 180 milljónum króna í 888 milljónir króna eða nær fimmfaldaðist. Algalíf hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir að velta í fyrsta sinn einum milljarði króna. Algalíf framleiðir örþörunga í hátækni vatnskerfum og vinnur úr þeim astaxanthín sem nýtt er í fæðubótaefni og snyrtivörur um allan heim. Fyrirtækið jók veltu úr 625 milljónum króna í rúman 1,2 milljarð króna á einu ári.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 15. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Gísli Hjálmtýsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís, Fida Abu Libdeh fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann:

- 2007 Marorka

- 2008 Mentor

- 2009 Mentor

- 2010 Nox Medical

- 2011 Handpoint

- 2012 Valka

- 2013 Meniga

- 2014 DataMarket

- 2015 Kvikna

- 2016 Eimverk

- 2017 Kerecis

- 2018 Kaptio

- 2019 Carbon Recycling International

- 2020 Kerecis

- 2021 1939 Games

Eftirfarandi fyrirtæki hafa fengið viðurkenningu fyrir góðan vöxt:

- 2007 Gagarín, Stiki, Stjörnu-Oddi

- 2008 Betware, Valka, Kine

- 2009 Naust Marine, Gogogic, Saga Medica

- 2010 Valka, Hafmynd, Menn og Mýs

- 2011 Marorka, Trackwell, Gogogic

- 2012 Kvikna, ORF Líftækni, Thorice

- 2013 Controlant, Nox Medical, Lceconsult

- 2014 Valka, Nox Medical, Skema

- 2015 Kvikna, Valka

- 2016 Lauf Forks, Orf Líftækni, Valka

- 2017 TeqHire, Valka, Kvikna

- 2018 Kerecis, Gangverk, Orf-Líftækni

- 2019 Taktikal, Kerecis

- 2020 Carbon Recycling International, Pure North Recycling

- 2021 Coripharma, Algalíf

 

Myndir/Birgir Ísleifur

Fleiri myndir er hægt að skoða á Facebook.

Vaxtarsprotinn-2021_mynd1Frá afhendingu viðurkenninganna. Í neðri röð frá vinstri eru Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Guðmundur Kristjánsson, einn af stofnendum 1939 Games, Hekla Arnardóttir, stjórnarformaður 1939 Games, og Orri Björnsson, forstjóri Algalíf. Í efri röð frá vinstri eru Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, Ingólfur Ævarsson, markaðsstjóri 1939 Games, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Fida Abu Libdeh, formaður Samtaka sprotafyrirtækja, og Lýður Skúli Erlendsson frá Rannís.

Vaxtarsprotinn-2021_mynd2Vaxtarsproti ársins er 1939 Games. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Ingólfur Ævarsson, markaðsstjóri 1939 Games, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðmundur Kristjánsson, einn af stofnendum 1939 Games, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Hekla Arnardóttir, stjórnarformaður 1939 Games.

Si_vaxtarsprotinn_2021_coripharmaCoripharma fékk viðurkenningu fyrir góðan vöxt í veltu. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Jónína Guðmundsdóttir, forstjóri Coripharma, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Si_vaxtarsprotinn_2021_1939_algalifAlgalíf hlaut viðurkenningu fyrir að ná að velta yfir 1 milljarði króna í fyrsta skipti. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Orri Björnsson, forstjóri Algalíf, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. 

Si_vaxtarsprotinn_2021-3Árni Sigurjónsson, formaður SI.

Si_vaxtarsprotinn_2021-7Ágúst Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís.

Si_vaxtarsprotinn_2021-11Fida Abu Libdeh, formaður Samtaka sprotafyrirtækja.

Si_vaxtarsprotinn_2021-15Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

Si_vaxtarsprotinn_2021-18Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Si_vaxtarsprotinn_2021-6

Si_vaxtarsprotinn_2021-8

Si_vaxtarsprotinn_2021-4

mbl.is, 2. september 2021.

Fréttablaðið, 2. september 2021.

Viðskiptablaðið, 2. september 2021.

Nútíminn, 2. september 2021.