Fréttasafn



13. sep. 2024 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Vegagerðin ekki staðið við boðaðar framkvæmdir

„Vegagerðin boðaði framkvæmdir upp á 32 milljarða í ár. En hins vegar hafa engin stór verkefni á þeirra vegum verið boðin út síðan haustið 2023,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í fréttum Stöðvar 2. Í frétt Kristjáns Más Unnarssonar kemur fram að verktakar sem sátu Útboðsþing SI í byrjun árs hafi vænst mikils þegar þáverandi innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafi tiltekið verkefnin sem átti að fara í á þessu ári.

Ekkert stórt verk boðið út hjá Vegagerðinni í heilt ár

Þá kemur fram í fréttinni að uppsagnir séu hafnar í verktakageiranum vegna verkefnaskorts í jarðvinnu. Einnig kemur fram að frá því þverun tveggja fjarða á Vestfjarðavegi í Gufudalssveit hafi verið boðin út í byrjun september í fyrra hafi ekkert stórt útboð verið auglýst hjá Vegagerðinni. Í fréttinni er greint frá því að þáverandi innviðaráðherra hafi nefnt breikkun Kjalarnesvegar að Hvalfjarðargöngum, áframhaldandi endurbyggingu Vestfjarðavegar, bæði að halda áfram á Dynjandisheiði og hefja brúasmíði yfir Gufufjörð og Djúpafjörð, og að ráðherra hafi nefnt Norðausturveg um Brekknaheiði. Ekkert þessara verka sé farið í útboð. 

Uppsagnir á meðan uppsöfnuð viðhaldsþörf í vegakerfinu er um 200 milljarðar

Í fréttinni kemur fram að Samtök iðnaðarins segi samdráttinn farinn að bitna á jarðvinnu- og malbiksverktökum og þar séu uppsagnir hafnar. „Við erum að sjá dæmi bara til dæmis á Vestfjörðum þar sem á þriðja tug starfsmanna var sagt upp vegna verkefnastöðu. Og þannig held ég að þetta geti orðið um allt land, ef ekkert verður að gert.“ Sigurður segir að verktakar gætu misst fólk sem búi yfir reynslu og þekkingu sem samfélagið þurfi á að halda við að byggja upp innviði landsins. „Og þetta auðvitað gerist á sama tíma og uppsöfnuð viðhaldsþörf í vegakerfinu er í kringum tvöhundruð milljarða.” 

Ekki annað í boði en að fjárfesta og ráðast í úrbætur

Þegar Kristján Már spyr Sigurð hvort hann hafi skilning á því hjá ríkinu að það hafi bara ekki fjármuni eða vilji slá á þenslu svarar hann: „Það eru auðvitað margar leiðir til að slá á þenslu. Við megum ekki gleyma því að ástand vega er víða bágborið, þannig að eftir margra ára skeið þar sem viðhaldi hefur ekki verið sinnt sem skyldi, þá er ekki annað í boði heldur en að fjárfesta og ráðast í úrbætur.“ 

Hér er hægt að horfa á fréttina á Stöð 2.

Stöð 2/Vísir, 12. september 2024.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.