Fréttasafn



1. okt. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Vegagerðin kynnir brúarverkefni á leið í útboð

Vegagerðin stendur fyrir kynningarfundi um brúarverkefni þriðjudaginn 8. október í fundarsal á 1. hæð Vegagerðarinnar í Borgartúni 7 kl. 9.00-10.30. Á fundinum verða kynnt brúarverkefni sem eru á leið í útboð á næstunni. Þar má nefna verkefni á borð við Steinavötn og Fellsá, Kvíá, Botnsá, Hverfisfljót og Jökulsá á Sólheimasandi ásamt öðrum brúarverkefnum sem eru í undirbúningi.

Erindi flytja:

  • Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar
  • Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar Vegagerðarinnar

Allir eru velkomnir.