Fréttasafn



14. des. 2023 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Vel mætt á fund um stöðu framkvæmda NLSH

Markaðsmorgunn NLSH, sem haldinn var í samstarfi við Samtök iðnaðarins fór fram fyrir fullum sal á Grand Hótel Reykjavík í vikunni. Í upphafi fundarins voru flutt nokkur erindi frá fulltrúum NLSH og í kjölfarið var fyrirspurnum svarað um stöðu framkvæmda NLSH og um innkaupaverkefni þeim tengdum. Jafnframt gafst fundarmönnum kostur á að ræða við starfsmenn NLSH sem sinna framkvæmdum og útboðsmálum og fá þannig upplýsingar um hvað sé á döfinni.

Á vef NLSH kemur fram að fundurinn sé liður í upplýsingagjöf NLSH til markaðarins. Haft er eftir Jónasi Jónatanssyni, teymisstjóra áætlana- og innkaupateymis hjá NLSH, að markmiðin með fundinum hafi verið að fyrirtækin þekki verkefn NLSH og að auka þátttöku í útboðum NLSH. „Það er okkur mjög mikilvægt, í þeim verkefnum sem efst eru á baugi hjá okkur, að hitta hagaðila frá fyrirtækjum í ólíkri starfsemi. Einnig vil ég þakka samstarfið við Samtök iðnaðarins og vonast til að við getum endurtekið þennan viðburð síðar.“ 

Á vef NLSH er hægt að nálgast glærur fundarins.

NLSH_fundur-desember-2023