Vel sóttur fundur SI um atvinnulíf á Reykjanesi
Góð mæting var á fund sem Samtök iðnaðarins efndu til í hádeginu í dag á Courtyard by Marriott í Reykjanesbæ. Yfirskrift fundarins var Öflugt atvinnulíf á Reykjanesi. Árni Sigurjónsson, formaður SI, hóf fundinn með ávarpi. Erindi fluttu Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarmála hjá Reykjanesbæ, Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia, og Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri Kadeco. Þá tók Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, til máls og stýrði umræðum í lok fundar. Fundarstjóri var Bergþóra Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá SI.
Í lok fundar var boðið upp á spurningar og var meðal annars umræða um raforkumál á Suðurnesjum, samgöngumál milli höfuðborgarinnar og Reykjaness og áformaða uppbyggingu í Ásbrú.
Hér er hægt að nálgast glærur fundarins.
Myndir: Hilmar Bragi.
Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá fundinum.
Árni Sigurjónsson, formaður SI.
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarmála hjá Reykjanesbæ.
Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia.
Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri Kadeco.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Bergþóra Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá SI, var fundarstjóri.