Fréttasafn



28. apr. 2020 Almennar fréttir Nýsköpun

Vel sóttur rafrænn kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð

Vel yfir 200 manns sóttu rafrænan kynningarfund Samtaka iðnaðarins og Rannís um Tækniþróunarsjóð sem haldinn var í dag. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti fundinn. Tryggvi Þorgeirsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, gerði grein fyrir stöðu sjóðsins og næstu skrefum. Þá fór Sigurður Björnsson, sviðsstjóri rannsóknar- og nýsköpunarsviðs Rannís, yfir starfsemi Tækniþróunarsjóðs og greindi frá skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar. Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís, sagði frá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Fulltrúar félagsmanna SI sögðu frá reynslu sinni af umsóknarferli sjóðsins, þær Eva María Sigurbjörnsdóttir, framleiðslustjóri Eimverk, og Fida Abu Libdeh, eigandi og framkvæmdastjóri GeoSilica. Fjölmargar spurningar bárust til frummælenda og var þeim svarað í lok fundarins. Fundarstjóri var Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á hugverkasviði SI. 

Hér er hægt að nálgast glærur fundarins:

Fundurinn var tekinn upp og er hægt að nálgast upptökuna hér fyrir neðan:


Fundur-28-04-2020-3-Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á hugverkasviði SI.

Fundur-28-04-2020-1-Tryggvi Þorgeirsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs.