Beint í efni

Fjórir sveinar útskrifast í hús­gagna­smíði

Sveinsbréf í húsgagnasmíði voru afhent á Hilton Reykjavík Nordica.

Fjórir sveinar útskrifast í húsgagnasmíði

Sveinsbréf í húsgagnasmíði voru afhent í vikunni á Hilton Reykjavík Nordica en að þessu sinni voru fjórir sveinar sem útskrifuðust. Jónas Kristinn Árnason, eigandi Miðás/Brúnás, var fulltrúi Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda við útskriftina og afhendi hann nýsveinunum blóm með hamingjuóskum með áfangann. Nemarnir sem útskrifuðust eru Adolf Wendel, Gunnar Ágúst Gunnarsson, Íris Dögg Asare Helgadóttir og Teitur Björgvinsson.

Fjórir sveinar útskrifast í húsgagnasmíði - Samtök Iðnaðarins