Beint í efni

Formenn nýrra starfs­greina­hópa innan SI boðnir velkomnir

Meistaradeild SI stóð fyrir fundi þar sem formenn nýrra starfsgreinahópa innan SI voru boðnir velkomnir.

Formenn nýrra starfsgreinahópa innan SI boðnir velkomnir

Meistaradeild Samtaka iðnaðarins stóð fyrir fundi í vikunni þar sem formenn nýrra starfsgreinahópa innan samtakanna voru boðnir velkomnir. Formennirnir eru eftirtaldir:

  • Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara
  • Kristján Aðalsteinsson, formaður Málarameistarafélagsins
  • Marinó Hákonarson, formaður starfsgreinahóps fyrirtækja í mannvirkjagerð á Vestfjörðum
  • Hrafnkell Guðjónsson, formaður starfsgreinahóps fyrirtækja í mannvirkjagerð á Austfjörðum
  • Bjarni Ólafur Marinósson, formaður Meistarafélags byggingarmanna í Vestmannaeyjum.

Á fundinum fór Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir stöðuna á vinnu við uppfærslu á iðnlöggjöfinni og Ólafur Jónsson kynnti Nemastofu atvinnulífsins.

Formenn nýrra starfsgreinahópa innan SI boðnir velkomnir - Samtök Iðnaðarins