Beint í efni

Fulltrúar SI viðstaddir opn­un­ar­há­tíð Food and Fun

Fulltrúum SI var boðið að vera við opnunarhátíð Food and Fun.

Fulltrúar SI viðstaddir opnunarhátíð Food and Fun

Fulltrúum SI var boðið að vera við opnunarhátíð Food and Fun í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi miðvikudaginn 6. mars þar sem framreiðslu- og matreiðslunemar skólans buðu upp á léttar veitingar.

Það voru Hulda Birna Kjærnested, verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, og Sigurður Helgi Birigsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sem voru viðstödd og kynntu sér nám skólans. Food and Fun hátíðin var haldin í 21. skiptið og voru um 20. veitingastaðir sem tóku þátt í henni.

IMG_4434
Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir kynnti sér það sem framreiðslu- og matreiðslunemar buðu upp á.

Sigurður Helgi Birigsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Haraldur Sæmundsson, framkvæmdastjóri hótel- og matvælaskólans í MK, og Hulda Birna Kjærnested, verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá SI.


Fulltrúar SI viðstaddir opnunarhátíð Food and Fun - Samtök Iðnaðarins