Beint í efni

Fundur um menntamál í iðnaði

Framleiðsluráð SI stendur fyrir fundi um menntamál í iðnaði mánudaginn 14. janúar í Húsi atvinnulífsins.

Fundur um nýja menntastefnu SI

Framleiðsluráð SI stendur fyrir fundi um menntamál í iðnaði, mánudaginn 14. janúar kl. 11.30-13.00 í fundarsalnum Hyl í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.

Markmiðið með fundinum er að sýna fram á mikilvægi þess að starfsmenn fái góða þjálfun til þeirra verka sem þeim er ætlað að sinna og miðla reynslu þeirra fyrirtækja sem standa vel að slíkum málum. Á fundinum verður farið yfir menntastefnu Samtaka iðnaðarins, símenntun í iðnaði og raunfærnimat, ásamt vel heppnuðum menntaverkefnum hjá fyrirtækjum innan raða SI.

Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.

Dagskrá

  • Menntastefna Samtaka iðnaðarins – Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri menntamála hjá SA.
  • Reynslusögur frá félagsmönnum – Snorri Jónsson, Dominos, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Prentmet, Hekla Gunnarsdóttir, Norðurál, Rut Jónsdóttir og Einar Skaftason, Hampiðjan.
  • Umræður

Boðið verður upp á hádegishressingu.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Framleidslurad-SI
Fundur um menntamál í iðnaði - Samtök Iðnaðarins