Beint í efni

Guðjón Ívar keppti fyrir hönd Íslands á Norð­ur­landa­móti málaranema

Guðjón Ívar Gränz keppti fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti málaranema (NMO 2026) sem fram fór í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þar leiddu saman hesta sína efnilegir málaranemar og nýsveinar frá Norðurlöndunum í krefjandi verkefnum sem reyndu á nákvæmni, fagmennsku og fjölbreytta færni í málaraiðn.

Guðjón stóð sig vel fyrir Íslands hönd og var þátttakan bæði lærdómsrík og ánægjuleg. Keppnin fór vel fram þótt aðalverkefni hennar reyndist umfangsmeira en gert hafði verið ráð fyrir. Raunar náði enginn keppenda að ljúka myndverkefninu að fullu innan tímamarka. Það kom þó ekki niður á stemningunni. Keppendurnir voru ánægðir með mótið og myndaðist góður andi í hópnum. Þau áttu skemmtilegan tíma saman bæði meðan á keppninni stóð og eftir að henni lauk. Slík mót eru enda ekki síður mikilvæg fyrir reynslu, tengslamyndun og fagleg samskipti ungs iðnaðarfólks á Norðurlöndunum en keppnina sjálfa.

Mikilvægur vettvangur fyrir ungt fagfólk

Norðurlandameistaramót málaranema er haldið á tveggja ára fresti og gefur ungu fagfólki einstakt tækifæri til að bera saman bækur sínar við jafnaldra sína frá hinum Norðurlöndunum. Verkefnin reyna meðal annars á nákvæmnismálun, litameðferð, veggfóðrun og sjálfstæð vinnubrögð.

Samhliða keppninni fór fram Málaraþing Norðurlandanna, þar sem fulltrúar málaragreinarinnar á Norðurlöndum komu saman. Fulltrúar Málarameistarafélagsins tóku þátt í þinginu og gaf ferðin þannig einnig gott tækifæri til að efla norrænt samstarf og tengsl innan greinarinnar.

Styrktaraðilum færðar bestu þakkir

Þátttaka Íslands í verkefni sem þessu væri ekki möguleg án öflugs stuðnings. Málarameistarafélagið færir öllum þeim sem lögðu verkefninu lið kærar þakkir. Styrktaraðilar þátttökunnar voru Málarameistarafélagið, FIT, Sérefni, Slippfélagið, Málning, Samtök iðnaðarins, Húsasmiðjan, Málningarþjónusta Carls og Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur.

Stuðningurinn skiptir miklu máli við að skapa ungu fagfólki tækifæri til að öðlast reynslu á alþjóðlegum vettvangi og um leið vekja athygli á þeirri miklu færni og fagmennsku sem býr innan málaraiðnarinnar á Íslandi.

Málarameistarafélagið þakkar Guðjóni Ívari fyrir að vera glæsilegur fulltrúi íslenskrar málaraiðnar í Stokkhólmi og óskar honum velfarnaðar í áframhaldandi starfi og námi.

Meðfylgjandi myndir sýna meðal annars Guðjón við vinnu í keppninni og verkefni hans á mismunandi stigum, keppendur við verðlaunaafhendingu, fulltrúa Málarameistarafélagsins og frá Málaraþingi Norðurlandanna sem haldið var samhliða mótinu.

Frá verðlaunaafhendingunni.
Guðjón Ívar Gränz í miðri keppni.
Fulltrúar Málarameistarafélagsins.
Málaraþing Norðurlandanna.