Beint í efni

IÐAN fær verðlaun fyrir framkvæmd á raun­færni­mati

IÐAN fræðslusetur hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi framkvæmd á raunfærnimati.

IÐAN fær verðlaun fyrir framkvæmd á raunfærnimati

IÐAN fræðslusetur hlaut aðalverðlaunin á alþjóðlegu VPL Biennale ráðstefnunni um raunfærnimat sem haldin var í Árósum í Danmörku. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framkvæmd á raunfærnimati og voru verkefni frá sjö löndum tilnefnd.

Í ár var aðaláhersla lögð á ávinning raunfærnimats fyrir þátttakendur og var IÐAN hlutskörpust. Í tilkynningu frá IÐUNNI segir að verðlaunin séu frábær viðurkenning fyrir starf undanfarinna ára og gott veganesti til framtíðar. Fyrir miðri mynd má sjá Hildi Elínu Vigni, framkvæmdastjóra IÐUNNAR með viðurkenninguna.

IÐAN fær verðlaun fyrir framkvæmd á raunfærnimati - Samtök Iðnaðarins