„Þarna er um að ræða ákvörðun sem að okkar mati er algerlega til fyrirmyndar. Það er líka mjög jákvætt að kominn sé skilningur hjá sveitarfélögum um að þau eru í raun í samkeppni um fólk og atvinnufyrirtæki og svona ráðstöfun gerir það að verkum að sveitarfélagið verður álitlegri kostur,“ segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í frétt Morgunblaðsins um afnám byggingaréttargjalda fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Reykjanesbæ.
„Þetta er stórfelld skattalækkun. Sveitarfélög eru í þeirri aðstöðu að geta tekið svona ákvarðanir núna, gert ráðstafanir og dreift kostnaði, í stað þess að hækka endalaust gjöld á fyrirtæki og einstaklinga og þar með byggingarkostnað. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem við sjáum skilning á því að sveitarfélög þurfi að keppa sín á milli og búa til gott rekstrarumhverfi fyrir sín fyrirtæki. Þetta er gleðidagur,“ segir Jóhanna Klara í Morgunblaðinu og kveðst vonast til þess að fleiri sveitarfélög fylgi fordæmi Reykjanesbæjar í þessu efni. Í fréttinni kemur fram að hún hvetji sveitarfélögin til þess að finna leiðir til þess að draga úr kostnaði í stað þess að hækka gjöld á byggingamarkaði.
Morgunblaðið, 22. ágúst 2026.




