Beint í efni

Menntadagur at­vinnu­lífs­ins framundan

Menntadagur atvinnulífsins 2018 verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12.00.

Ráðstefna um menntun og færni á vinnumarkaði

Menntadagur atvinnulífsins 2018 verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8.30-12.00. Yfirskrift dagsins er Hvað verður um starfið þitt?. Dagurinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Á deginum verða Menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í 5. skiptið en Alcoa Fjarðaál og Keilir hlutu verðlaunin á síðasta ári. Hér er hægt að skrá sig.



Dagskrá

  • Setning. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA.
  • Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra. Lilja Alfreðsdóttir.
  • Færni er framtíðin: Hvað átt þú eftir að læra? Lilja Dögg Jónsdóttir, starfsmannastjóri Burning Glass Technologies.
  • Hvað geta fyrirtæki gert? Jón Björnsson, forstjóri Festi.
  • Amma, hvað er stundaskrá? Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Kara Connect.
  • Hugvekjur
  • Ragnar Kjartansson, listamaður. Fida Abu Libdeh, frumkvöðull og eigandi GeoSilica Iceland. Marinó Páll Valdimarsson, teymisstjóri IoT og gervigreindar hjá Marel.
  • Menntaverðlaun atvinnulífsins 2018 afhent.
  • Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi.
  • Málstofur: A) Hvað verður um byggðirnar? B) Tæknileg áhrif. C) Framlínan - tækni, hæfni og þjónusta.

Fundarstjóri er Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.


Menntadagur atvinnulífsins framundan - Samtök Iðnaðarins