Beint í efni

Námskeið í ISO 9000 gæða­stjórn­un­ar­stöðl­um

Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði miðvikudaginn 2. október um ISO 9000 gæðastjórnarstaðla.

Námskeið í ISO 9000 gæðastjórnunarstöðlum

<img height="1" width="1" src="https://www.facebook.com/tr?id=656821348042895&ev=PageView& noscript=1"/>

Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði miðvikudaginn 2. október kl. 8.30-15.30 þar sem markmiðið er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig hægt er að beita þeim við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Auk þess að skýra uppbyggingu staðlanna, notkun og kröfurnar í ISO 9001:2015, verður farið yfir tengsl staðlanna og gæðastjórnunarkerfis samkvæmt ISO 9001. Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands í Skúlatúni 2. Þeir sem sækja námskeiðið þurfa að hafa staðalinn ISO 9001:2015 með sér. Einnig er hægt að fá staðalinn lánaðan hjá Staðlaráði meðan á námskeiði stendur. Hámarksfjöldi á námskeiðið eru 14. Leiðbeinandi er Sveinn V. Ólafsson, verkfræðingur. Dagskrá 08:30 Gæðastjórnun - Tengsl gæðastjórnunarkerfis og ISO 9000 09:10-09:20 hlé 09:20-10:00 Uppbygging og áherslur 10:00-10:20 Kaffi 10:20-11:00 Kröfurnar í ISO 9001 11:00-11:10 hlé 11:10-11:50 Kröfurnar í ISO 9001 framh. 11:50-12:35 Hádegisverður 12:35-13:05 Verkefnavinna 13:05-13:25 Kynning á niðurstöðum verkefna 13:25-13:35 hlé 13:35-14:15 Kröfurnar í ISO 9001 framh. 14:15-14:25 hlé 14:25-15:15 Kröfurnar í ISO 9001 framh. 15:15-15:30 Umræður og samantekt - Námskeiði slitið Á vef Staðlaráðs Íslands er hægt að skrá sig á námskeiðið.

Námskeið í ISO 9000 gæðastjórnunarstöðlum - Samtök Iðnaðarins