Beint í efni

Ný mennta­könn­un kynnt á morgunfundi um menntamál

Kynna á niðurstöður nýrrar menntakönnunar á vegum SA um umfang menntunar og fræðslu innan ólíkra fyrirtækja á morgunfundi í Húsi atvinnulífsins.

Ný menntakönnun kynnt á morgunfundi um menntamál

Fyrsti morgunfundur vetrarins í fundaröð Húss atvinnulífsins um menntamál verður haldinn miðvikudaginn 27. september kl. 8.30-10.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Á fundinum verða kynntar niðurstöður nýrrar menntakönnunar á vegum Samtaka atvinnulífsins um umfang menntunar og fræðslu innan ólíkra fyrirtækja. Að auki fá fundargestir innsýn í hvernig þessum málum er háttað hjá þremur fyrirtækjum sem fara sína leið í menntun og fræðslu starfsfólks.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Dagskrá fundarins:

  • Helstu niðurstöður nýrrar menntakönnunar - Þórður Höskuldsson, framkvæmdastjóri Outcome kannana og Guðrún Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri menntamála hjá SA
  • Hvernig gerum við þetta? Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Eimskips - Kristjana Milla Snorradóttir, verkefnastjóri mannauðsmála Nordic Visitor - Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, fræðslustjóri Sjóvá

Fundarstjóri er Áslaug Hulda Jónsdóttir, forstöðumaður menntamála SVÞ.

Ný menntakönnun kynnt á morgunfundi um menntamál - Samtök Iðnaðarins