Samtök iðnaðarins í samstarfi við Félag ráðgjafarverkfræðinga hyggjast ráðast í gerð ítarlegrar skýrslu að norrænni fyrirmynd sem fjallar um stöðu innviða hér á landi en skýrslan kallast jafnan State of the Nation. Þetta kemur fram í umsögn SI um þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun fyrir árin 2018 til 2022, mál nr. 402. Þar segir að útgáfa skýrslunnar marki grundvöll að umræðu á vettvangi stjórnmála og samfélagsins alls um stöðu innviða. Jafnframt kemur fram að óumdeilt sé að ástand og uppbygging innviða sé nátengd samkeppnishæfni landsins og séu í reynd lífæð heilbrigðs samfélags. Þrátt fyrir að vel hafi árað í efnahagslífinu síðustu ár hafi innviðafjárfesting verið lítil og að óbreyttu séu horfurnar ekki góðar. Telja samtökin að vinna af þessum toga geti verið mikilvægt framlag til fjármálaáætlunar.
Skýrsla að norrænni fyrirmynd um stöðu innviða hér á landi
Skýrsla að norrænni fyrirmynd um stöðu innviða hér á landi
Samtök iðnaðarins í samstarfi við Félag ráðgjafarverkfræðinga hyggjast ráðast í gerð ítarlegrar skýrslu að norrænni fyrirmynd sem fjallar um stöðu innviða hér á landi.

Tengt efni
Ný rafmagnsöryggisgátt HMS kynnt í samstarfi við rafverktaka

Innviðaskuld vegakerfisins velt yfir á framtíðarkynslóðir
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Síðdegisútvarpi Rásar 2 og Morgunblaðinu um vaxandi bil á milli gjaldheimtu ríkisins af bifreiðum og útgjalda til viðhalds og uppbyggingar á vegakerfinu.

Iðan með nýtt hlaðvarp um bygginga- og mannvirkjagreinar
