„EES-samningurinn er okkar mikilvægasti viðskiptasamningur og núna þegar að ljóst er að Ísland er ekki að fara í Evrópusambandið eða í fyrirsjáanlegri framtíð að þá þarf að styrkja stoðir EES-samningsins. Við höfum þegar átt samtöl um þetta við stjórnvöld á Íslandi og við áttum mjög góð samtöl hér í Brussel við aðila um þetta líka,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í samtali við Björn Malmquist, á Morgunvakt Rásar 1 þar sem hann var staddur í Brussel með fleiri fulltrúum SI.
Sigurður segir að Samtök iðnaðarins telji að það þurfi að gera þetta á heildstæðum grunni. „Það er ekki nóg að horfa bara á eitt viðfangsefni eða afmörkuð mál heldur þarf að stórauka hagsmunagæslu og íslensk stjórnvöld þurfa að gera það, við þurfum að gera það og fleiri aðilar þurfa að gera það. Það þarf að vinna miklu meira í hagsmunamati í greiningum og það þýðir að aðilar eins og til dæmis atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að tala meira saman og finna taktinn í því hvernig þau vinna saman og skiptast á upplýsingum. Og við höfum komið því á framfæri.“
Mikill upptökuhalli í EES-samningnum
Sigurður segir mikinn upptökuhalla vera í EES-samningnum. „Það eru hátt í 600 gerðir sem bíða þess að vera teknar inn í EES-samninginn. Og þetta er til viðbótar við svona álíka fjölda sem bíður, hefur verið tekinn inn í samninginn en bíður þess að vera innleiddur á Íslandi. Þannig að við skuldum mikið og samningurinn gildir í báðar áttir þannig að það eru hagsmunir Íslands, fyrirtækja og almennings að vinna á þessum halla þannig að við njótum örugglega sömu réttinda og aðrir.“
Tækifæri til að hafa áhrif
Þegar Björn spyr Sigurð hvort í tengslum við hagsmunagæsluna séu ekki frekar takmörkuð tækifæri fyrir okkur til þess að hafa áhrif svarar Sigurður að hann haldi að það séu mikil tækifæri fyrir okkur til þess að hafa áhrif. „Ég held að við getum gert miklu meira af því og eftir því sem við komum oftar hingað til Brussel þá átta menn sig á á fleiri tækifærum til þess. En þetta snýst auðvitað um um forgangsröðun.“ Sigurður segir að Samtök iðnaðarins hafi sett alþjóðamálin og Evrópumálin í meiri forgang fyrir nokkrum árum síðan. „Við höfum sett mjög hæft fólk í að sinna þessum málum innan okkar raða og við höfum nýtt betur þau tækifæri sem við höfum haft hvort sem það er á vettvangi ráðgjafarnefndar EFTA, á vettvangi BusinessEurope eða í nánara samstarfi við Norðurlöndin, kannski þá Noreg sérstaklega sem er í sömu stöðu og við.“
Stjórnvöld þurfa að taka forystuna
Sigurður segir jafnframt í viðtalinu að á síðasta ári þegar svona miklar breytingar urðu í alþjóðamálum þegar Trump tók við og tollastríðið skall á og verndarráðstafanir hérna megin hafsins „þá liggur við á einni nóttu gjörbreyttum við okkar nálgun í þessum málum þannig að þetta er sannarlega miklu ofar á forgangslistanum heldur en verið hefur. Við getum gert meira. Við höfum séð tækifæri til þess en þetta snýst um að stilla saman strengina. Stjórnvöld þurfa að vísa veginn þarna, þau þurfa að taka forystuna, þau þurfa að segja hvernig þau vilja vinna með okkur og öðrum og þá getum við gert miklu meira. Þetta er eins og með kórinn, ef hann fær ekki nóturnar að þá syngur hann ekki.“
Á vef RÚV er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð í heild sinni.
Morgunvaktin á Rás 1, 28. september 2026.



