Beint í efni

Úthlutun úr Hvatn­ing­ar­sjóði Kviku

Úthlutað var úr Hvatningarsjóði Kviku til sex kennaranema og átta iðnnema.

Úthlutun úr Hvatningarsjóði Kviku

Úthlutað var úr Hvatningarsjóði Kviku fyrir árið 2019/2020 síðastliðinn föstudag í Kviku banka í Borgartúni. Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku, ásamt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni SI, úthlutuðu styrkjunum til átta iðnnema. Hvatningarsjóðurinn er samstarfsverkefni Kviku og Samtaka iðnaðarins sem hefur það að markmiði að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og starfsnáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf.

Eftirfarandi hlutu styrk að fjárhæð kr. 1.000.000:

  • Margrét Agnes Iversen - listakona og nemi í stálsmíði
  • Þóra Kolbrún Jóhannsdóttir - nemi í vélstjórn í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Eftirfarandi hlutu styrk að fjárhæð kr. 500.000:

  • Hallgrímur Þorgilsson - nemi í húsamíði í Fjölbrautarskóla Suðurlands
  • Lára Guðnadóttir - nemi í vélstjórn í Verkmenntaskólanum á Akureyri
  • Rökkvi Jökull Jónasson - nemi í húsasmíði í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti
  • Stefán Narfi Bjarnason- nemi í rafvirkjun í Fjölbrautarskóla Suðurlands
  • Vala Alvilde Berg- nemi í rafvirkjun í Verkmenntaskólanum á Akureyri- mæti ekki á athöfina
  • Örn Arnarson - nemi í vélstjórn í Verkmenntaskólanum á Akureyri

Nánar um Hvatningarsjóðinn á vef Kviku banka.